Um söfnunina

Í TILEFNI 90 ÁRA AFMÆLISINS STANDA KVENFÉLÖG UM LAND ALLT FYRIR SÖFNUN SEM STENDUR TIL 1.FEB 2021!

Kvenfélagasamband Íslands var stofnað 1. febrúar 1930 og fagnar því 90 árum árið 2020.

Kvenfélagasamband Íslands (KÍ), er samstarfsvettvangur og málsvari kvenfélaganna í landinu. KÍ er fjölmennasta kvennahreyfingin á Íslandi sem starfar á landsvísu, með 17 héraðssambönd og 154 kvenfélög sem telja tæplega 5000 félaga. 1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar.

Hverju er verið að safna fyrir?

Kvenfélagskonur safna fyrir tækjum og hugbúnaði þeim tengdum, sem kemur til með að gagnast öllum konum um landið allt. Um er að ræða mónitora og ómtæki, nýja eða uppfærða eftir því sem við á og rafrænar tengingar á milli landsbyggðar og Kvennadeildar Landspítalans.

Þau munu nýtast öllum konum á Íslandi, hvort sem er við meðgöngu og fæðingu, eða skoðana vegna kvensjúkdóma. Tækin sem safnað verður fyrir geta aukið öryggi í greiningum og í mörgum tilfellum komið í veg fyrir að senda þurfi konur á milli landshluta vegna ýmissa óvissuþátta. Sjá nánar hér að neðan.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur tileinkað árið 2020 hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum og það er okkur því sérstakt gleðiefni að safna tækjum sem nýtast þessum starfsstéttum.

Kvenfélagskonur hafa stutt við l Landsspítalann frá stofnun hans og staðið fyrir söfnunum á peningum og tækjum sem hafa komið sér vel fyrir fjölmarga þegna landsins.

Markmiðið er að safna 36 milljónum króna!

Fjáröflunarleiðir

kvenfélagskonur víða um land  selja falleg armbönd sem í eru grafin gildi sambandsins, Kærleikur – Samvinna – Virðing og Ég er kvenfélagskona. Armböndin voru framleidd í takmörkuðu upplagi í tilefni söfnunarinnar.

Í samvinnu við Omnom selja kvenfélagskonus einnig súkkulaðipakka sem inniheldur þrjár mismunandi súkkulaðiplötur frá Omnom og eru pakkarnir sérmerktir söfnuninni.

Armböndin og súkkulaðið eru fáanleg hjá kvenfélögum um land allt og vefverslun – Áhugasamir endursöluaðilar geta einni haft samband og lagt okkur lið.

Vilt þú fá heimsókn frá kvenfélagskonum?

Ef vinnustaðurinn þinn vill fá heimsókn frá kvenfélagskonum með armbönd og súkkulaði, láttu okkur vita og við finnum tíma með þér. Sendu póst á kvenfelag@kvenfelag.is

Allar nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu KÍ s: 552 7430 kvenfelag@kvenfelag.is og afmælisnefnd.

Afmælisnefnd skipa: 

Eva Michelsen, formaður afmælisnefndar, Kvenfélagasamband Kópavogs
Elinborg Sigurðardottir, ritari afmælisnefndar, Samband sunnlenskra kvenna SSK
Linda Sverrisdóttir, afmælisnefnd, Samband borgfirskra kvenna
Ágústa Magnúsdóttir, afmælisnefnd, Kvenfélagasamband Gullbringu- og Kjós KSGK

Fulltrúar stjórnar KÍ

Þórný Jóhannsdóttir, gjaldkeri afmælisnefndar varaforseti Kvenfélagasambands Íslands
Sólveig Ólafsdóttir, varastjórn Kvenfélagasambands Íslands
Guðrún Þórðardóttir, forseti Kvenfélagasambands Íslands